Bloggdís.....
28.07.2008 23:03:06 / huldis83

Þjóðhátíð...

Jæja... það er aldeilis engin hreyfing á þessari síðu!! Best að bæta aðeins úr því;)

Það er allt gott að frétta og sumarið hefur heldur betur liðið hratt... Trúi varla að ágústmánuður sé handan við hornið8|  Það er margt sem búið er að gera í sumar og hefur þetta verið mjög skemmtilegt...

- Við Steini fórum í útilegur í Þórsmörk og Húsafell.
- Löbbuðum á Esjuna.
- Fórum 2 helgar í bústað í Munaðarnesi.
- Ég tók 2 efnafræðiáfanga í sumarskóla.
- Ég fór á ball á Írskum dögum með stelpunum.
- Skráði mig í Hjúkrun í HÍ.
- Skráði mig í Glitnismaraþon (21 km) og standa yfir strangar hlaupaæfingar í Þingholtunum.
- Er orðin löggildur íbúi Þórsgötu 7:D
- og margt margt fleira...

Við erum á leiðinni á Þjóðhátíð og alveg megaspennt yfir því...:)  Vonum bara að veðrið haldi sig á mottunni og verði allavega ekki mikið rok...

Yfir og út...
Huldís8)

» 7 hafa sagt sína skoðun

18.04.2008 20:14:18 / huldis83

Hækkandi sól...

Jæja... það er kominn tími á smá update hér...

Núna á ég semsagt að vera að læra og er búin að vera að finna mér hvað sem er að gera til þess að þurfa ekki að setjast niður við það að gera lokaverkefni eða skrifa skýrslu:s Er samt nokkuð viss um að margir kannast við þessar aðstæður:$

Það er allt fínt að frétta og svei mér þá ef það er ekki bara bjart framundan:D Sumarið að koma og lífið er fínt:) Við Steini erum á leið til Prag í næstu viku og er mikil tilhlökkun fyrir því... Komum fyrst við í Köben og gistum í eina nótt hjá Kristínu og Brodda:) Það verður æði að hitta þau og svo að eyða nokkrum dögum í "vorinu í Prag" sem er þekkt fyrir rómantík og æðislegheit:D Ég finn líka alveg að þetta er fínn tími til að taka sér smá pásu frá vinnunni og lengja vorið örlítið- það eigum við svo skilið eftir þennan vetur;)

Helgin verður frekar róleg og ekkert búið að plana hana frekar sem mér finnst hrikalega nice- þarf að læra slatta og ætla að slaka á þess á milli8)

Góða helgi..
Huldís:) bjartsýn...

» 6 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 22:56:02 / huldis83

Breytt plan:)

Snyrtihittingurinn verður heima hjá Dagný Lóu klukkan 20 á laugardaginn:) Miðhús 50.. Adam&Evu kynning og léttur matur í boði... Það má einnig hafa með sér hvítvín eða aðra álíka hressandi drykki...

Þá er þetta loksins komið á hreint og verður án efa mjög gaman...

Huldís:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 00:14:53 / huldis83

Þá er það ákveðið:)

Jæja... Gleðilega páska allir...

Þá hefur það verið ákveðið að hittingur hjá Snyritifræðipíunum verður næsta laugardag:) sem er 29 mars. Hittumst bara svona seinnipartinn... Verður byrjað í keilu og sjá svo til með kaffihús eða jafnvel mat;) eða bara mat á kaffihúsi:haha:  Eru ekki allar sammála því??

Annars er allt gott að frétta af mér... Var í húsmæðraorlofi á Akureyri um helgina með Kristínu Höllu og við höfðum það svooo gott:) Alveg nauðsynlegt að komast í burtu í smá tíma og slappa af með páskaegg númer 7 í farteskinu... :lol:



Steini er í Japan núna og búinn að vera í viku og mér finnst eins og þessi vika sé búin að vera í 2 mánuði að líða... Hann kemur á miðvikudaginn og ég get ekki beðið:)




Það styttist óðfluga í vorið og er alveg merkilegt hvað það birtir fljótt á þessum tíma... Það liggur við að maður gleymi á veturna hvernig sumarið er:) Sumarið er tíminn- það eitt er víst...

Jæja, heilinn er þreyttur- ætla í rúmið...
Huldís:) bíð spennt...

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 22:11:49 / huldis83

Snyrtifræðistelpuhittingur...

(Þessi færsla er tileinkuð snyrtifræðistelpunum mínum:haha:)

Núna er alveg kominn tími á það að við skvísurnar förum að hittast- alltof langt síðan við flestar höfum sést:)

Ég var að spá hvort laugardagurinn/kvöldið 15 mars myndi henta ykkur í smá hitting... Ég hef svo sem ekki pælt sérstaklega í því hvað við gerum en það þarf hvorki að vera dýrt né tímafrekt- væri bara gaman að geta hisst allar og spjallað... Kannski farið út að borða og farið svo í heimahús eða eitthvað svoleiðis- ekki endilega djamm frekar en þið viljið...:)

Endilega tjáið ykkur eins og þið viljið og komið með hugmyndir. Það má alveg breyta um dagsetningu ef einhverjar komast ekki, reynum bara að hafa sem flestar með og hafa gaman:)

Kveðja Huldís...

» 28 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 22:42:56 / huldis83

Sjaldséðar hvítar bloggfærslur...

Það er heldur betur blússandi gangur á þessari síðu.... NOT!!

 

Best að segja í nokkrum orðum hvað hefur á daga mína drifið síðan ég bloggaði síðast í nóvember...

- Brjálað að gera á stofunni fyrir jólin og allt á haus þar- en gekk vel;)
- Eyddi jólunum í Borgarnesi en áramótunum í Rvk- allt fór þetta vel fram og ég græddi nokkur aukakíló yfir þennan tíma8)
- Fór á GusGus á nasa... Ekkert smá gaman...
- Labbaði yfir Eyjafjallajökul með HSSK og gisti í snjóhúsi á leiðinni... Það var hrikalega erfitt en gaman svona eftirá;) Lærði svart á hvítu að það sem drepur mann ekki styrkir mann...
- Tók Sveinsprófið og rúllaði því upp;) Frábært að klára þann áfanga í lífinu...
- Byrjaði síðari önnina í Meistaraskólanum... Hlakka til þegar það klárast líka:D
- Horfði á The Secret og er ekki frá því að hugarfarsbreyting hafi orðið...
- Bauð Steina í óvissuferð í tilefni að Bóndadeginum...
- Bauð Fjólu, Magneu og Önnu Rakel í keilu og nammiferð...
 - Búin að vera með eindæmum menningarleg og fór um daginn á Argentínu og Jesus Christ Superstar í boði Steina sæta:haha: Það var alveg frábært...
- Erum svo á leiðnni á Ivanoff annaðkvöld og búin að sjá Brúðgumann..
- Er búin að vera með frasana úr Næturvaktinni óþolandi mikið á heilanum...
- Eigum miða á Sálina 20 ára...
- Erum að skoða ferð til Prag á netinu þessa dagana sem yrði þá í lok apríl...
- Fer á 3 námskeið í HSSK næstu helgar og er það skyndihjálp 1 og 2 og snjóflóðanámskeið;) Fínt að hafa það í farteskinu...
- Líklegt er að ég eyði Páskunum fyrir norðan á skíðum:) (eða fyrir norðan allavega8|)

Annars er allt rólegt og fyrir þá sem ekki vita þá fékk ég að vera áfram í Eskihlíðinni og Stefán bróðir flutti inn og svo er hún Hrönn ennþá hérna líka:D Það gat varla verið betra!! 

Er farin að skoða sumarið og öll skemmtilegheitin sem því tengjast... Fæ m.a. alvöru sumarfrí í fyrsta skipti á ævinni- ekki amalegt það... 

Kveð í bili og ætla að reyna að láta ekki líða svona langt á milli...

Huldís8) 


» 11 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 01:00:59 / huldis83

Þvílík hamingja:)

Heldur betur kominn tími á hreyfingu á þessa síðu...;)

Ég bara varð að deila með alheiminum hversu rosalega heppin stúlkukind ég er:D

Ég varð fyrir þeirri ómetanlegu lífsreynslu á laugardaginn að eignast nöfnu:) Þetta er án efa einn af mestu gleðidögum í lífi mínu- þetta snerti mig svo persónulega... Lilja systir var að skíra nýjasta fjölskyldumeðliminn og ekki nóg með að ég hafi verið viðstödd fæðingu hennar, þá er ég einnig guðmóðir og fékk prinsessan nafnið Huldís Hlín:D Ég er ennþá að hrista hausinn yfir þessu og hlýnar mér svo í hjartanu þegar ég hugsa um hversu mikill heiður þetta er:) Að einhver skuli meta mann það mikils að vilja skíra barnið sitt eftir manni er bara alveg magnað... Ég á varla orð:) Enda er ég búin að vera á bleiku skýji síðan og verð það sennilega eitthvað áfram:D

Annars er allt gott... Skólinn er að klárast og prófin nálgast, tek eitt heimapróf í stjórnuninni en fer í próf 11. des í lögfræðinni minnir mig... Það verður gott þegar það klárast. Vinnan gengur annars vel en síminn stoppar ekki þessa dagana og mikið búið að bóka fyrir jólin, þannig að það fer hver að verða síðastur að næla sér í þann tima sem hann vill:|

Við Steinar skelltum okkur á jólahlaðborð með Gyðjunni á Hótel Sögu um helgina og var það bara mjög gaman:) Fínn matur og skemmtiatriðin góð... Finnst svo gaman að fara eitthvað svona fínt út;)

Annars er búin að vera frekar þétt dagskrá í HSSK síðustu vikur og fórum við meðal annars í Tindfjöll yfir eina helgi á vetrarfjallamennskunámskeið. Þar sváfum við meðal annars í tjaldi í frosti sem var nokkuð mögnuð upplifun, lærðum ísaxarbremsu, lærðum að tryggja í snjó, lærðum að síga fram af kletti, ganga á broddum, ganga í línu og margt fleira... Þessi ferð var rosalega vel heppnuð en á móti rosalega erfið. Það kom mér mest á óvart hvað maður á virkilega mikið eftir hjá sér þegar maður heldur að orkan sé gersamlega búin...;) Þessi ferð styrkti mig allavega heilmikið og hlakka ég bara til að sofa í snjóhúsi í janúar:D  Myndir úr ferðinni eru HÉR

Hugsa að ég skelli mér í afslöppun uppí Borgó um helgina- ég man ekki hvenær ég fór síðast... Ég hlakka til:)

Best að fara að hvíla sig...

Huldís:) Trúir varla sínum eigin eyrum...


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 10:05:00 / huldis83

4 stelpan þeirra Lilju og Munda fædd...

 

Stúlka fædd 17. 10. '07 klukkan 11:00:) 12,5 mörk og 48cm... Pínulítið kríli... Var svo lánsöm að fá að vera viðstödd fæðinguna og það var alveg magnað:) Hér eftir dáist ég að og virði allar mæður:) Allt gekk vel og móðir og dóttir heilsast mjög vel...

 

 

Hún er með lítinn spékopp öðru megin eins og við systur og sláandi lík móður sinni og hennar fólki enn sem komið er:)

 Huldís:D Stollt frænka...


» 12 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 12:52:20 / huldis83

Fréttir, fréttir....

Jæja...

Þá er ég nú komin heim frá Danmörku (fyrir reyndar 3 vikum8)) og var það hin fínasta ferð í alla staði... Það var mjög gott að skipta um umhverfi því þá veit maður hvað maður hefur það gott heima hjá sér;) Ekki það að mér hafi ekki liðið vel þarna og gæti vel aðlagast Danmörku heldur er bara of margt sem bíður mín hérna heima þessa dagana:D

Þarna erum við krúttin í Legolandi;)

Það er allt gott að frétta af mér annars.. Við Kristín Halla ákváðum að skrá okkur í Hjálparsveit skáta Kópavogi núna í haust og líst okkur bara mjög vel á þetta... Erum á fullu í nýliðaprógrammi og erum meðal annars búnar að vera á ferðamennskunámskeiði þessa viku og erum að fara að ganga Fimmvörðuháls (frá Skógum yfir í Þórsmörk) um helgina og gistum í Langadal í Þórsmörk;) Það verður bara gaman og erum við búnar að gera heiðarlegar tilraunir til þess að æfa okkur að labba á fjöll... Fórum meðal annars hálfa leið uppá Esju og svo á Grábrók í Norðurárdal...;) hvorki meira né minna:D (ætluðum á Hafnarfjall en hættum við vegna veðurofsa en það var nú samt ekki mikið skárra á Grábrók- þurftum að setjast niður þegar við komum upp vegna roks:S)

Er búin að vera að sanka að mér búnaði og næstum búin að kaupa hálfa Útilíf;) Keypti meðal annars: Gönguskó, vindhelda vettlinga, göngusokka, hrikalega fína húfu og ullarnærföt... Sem betur fer átti ég eða gat útvegað mér restina sem þarf því þetta er sko ekki ókeypis:o Svo þarf maður meðal annars að eiga ísöxi, snjóflóðaíli og snjóflóðastöng þegar lengra líður:D þetta er svolítið fyndinn búnaður en alveg nauðsynlegur ef maður ætlar að taka þetta alvarlega...;)

Annars gengur vel í vinnunni en maður er alveg á haus suma daga því það er svo mikið að gera... ÉG ER LÍKA AÐ KLÁRA SAMINGINN MINN ÞESSA DAGANA... KLÖPPUM FYRIR ÞVÍ!! Þá sér maður loksins fram á sæmileg laun og aðeins meiri þægindi... Er alveg óskaplega hamingjusöm kona:) Það er búið að ákveða dagsetningu fyrir árshátíðina og ætlum við að fara í mat, ball og skemmtun á Hótel Sögu;) það verður gaman... Einnig erum við með dekurdaga reglulega og verður einn á mánudaginn til dæmis...

Skólinn gengur ágætlega... mætti vera duglegri að lesa en það kemur þegar prófin nálgast...

Lilja systir á ekki nema 3-4 vikur eftir af meðgöngunni og er hún búin að bjóða mér að vera viðstödd þegar 4 stelpan hennar fæðist...:D Ég ætla að gera allt sem í mínu valdi stendur til að reyna það því ég er sjálf hálf hrædd við svona hluti og langar að sjá að þetta sé nú alveg hægt og að þetta sé nú ekkert lífshættulegt:o En sjáum til hvernig þetta fer...

En ætla að fara að smyrja nesti fyrir morgundaginn...
Huldís:haha: á þykku bleiku skýji:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 19:33:22 / huldis83

Ísland.... Best í heimi...:)

Jæja... þá er búin vika af fríinu mínu í DK og hefur mér síður en svo fundist ég vera mikið í útlöndum. Í fyrsta lagi er ég á heimili hjá systir minni þannig að ég er ekki ókunnug, svo hefur veðrið verið frekar íslenskt og svo er maturinn voðalega svipaður... nema reyndar vatnið, á frekar erfitt með að venjast því... það er eins og það sé þykkt:S

Við Elva og co keyrðum Stefán bróðir á flugvöllinn áðan og á ég eftir að sakna hans- enda klassa náungi þar á ferð;) og erum við búin að skemmta okkur vel saman. Erum búin að vera með plan á hverjum degi og búin að komast yfir að gera helling að mínu mati... Við erum búin að fara í Djurs Sommerland sem er tívolí og skemmtigarður, fórum niður á strönd og í Bambagarð sem er þar hjá, fórum í Go-kart á stærstu Go-kart braut í Evrópu sem Elva er næstum með í bakgarðinum hjá sér, svo fórum við nokkrum sinnum í Bruun's  sem er verslunarmiðstöð til að sjoppa af okkur vasana, vorum svo í Legolandi í dag. Allt þetta hefur verið vel heppnað en óneitanlega standa rússíbanar og Go-kart uppúr;)

Annars er allt gott og var rosa gaman að hitta Elvu, Söru og Skarphéðin. Þau hafa það mjög gott hérna en fyrir mína parta þá er Ísland minn tebolli;) 

Ég á viku eftir og fer til Vibogar til Katýar á morgun og verð í nokkra daga hjá henni... Það verður æðislegt að fara til hennar og hafa það kósý...:)

Sigga og Davíð... Til hamingju með prinsinn:)

Kveð í bili
Huldís:)


» 12 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 13:33:55 / huldis83

einn, tveir og djammmmmaaaaa......

Langaði að deila þessu með ykkur:

 Óheppin mamma...

 Verkfræðingar að störfum...

 Dansi dansi...

 Huldís...:lol: ég fæ ekki leið á svona....


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 20:21:04 / huldis83

Lasin bara...

Jæja, þá kom að því, það helltist yfir mig hiti og leiðindi... er reyndar búin að vera drusluleg síðan fyrir helgi en fékk samt bara hita í gær og dreyf mig strax til læknis til að losna sem fyrst við þetta... er hressari í dag en finn samt að ég er ekki orðin góð:( Sem betur fer er maður mjög sjaldan veikur þannig að þetta er nú ekkert tiltökumál;) hristi það af mér...

Er búin að skrá mig í Meistaraskólann og ætla að taka 2 fög í kvöldskóla þessa önnina og klára það dæmi sem fyrst af... langar ekki að eyða miklum tíma í það að vera bara að vinna þessa dagana- reyna að klára sem mest á meðan maður hefur það svona rosalega gott einn með sjálfum sér;) Ég klára saminginn um miðjan október og tek svo sveinspróf í janúar og þá er ég komin langt á veg með snyrtifræðina allavega:)  spurning um hvað verður svo næst á dagskrá??:$

Fór á Gay Pride síðustu helgi og þvílíkt og annað eins hvað það var gaman og flott að sjá þetta allt... Ég hef aldrei haft neitt á móti hommum og lesbíum en finnst samt skrítið að þau séu að opinbera svona hvað þau eru að njóta þess að vera öðruvísi þegar þau í rauninni vilja vera eins og allir aðrir og berjast fyrir jafnrétti... en eins og ég segi ég styð þau fullshugar en finnst þetta bara pínu mótsagnarkennt...;)

 Svo er það Menningarnótt næstu helgi og hlakkar mig til að sjá allt sem verður í boði þar... sérstaklega tónleikana og það allt... Við í vinnunni ætlum að fara 11 saman út að borða á Caruso á föstudaginn- ummm elska að fara svona út:)

 En jæja ekki meira í bili...
Friends bíða mín í ofvæni...

Huldís8)  sem hefur verið hressari...


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 00:02:38 / huldis83

....

Stelpan komin úr Eyjum... þetta var bara með því skemmtilegasta sem ég hef gert á ævi minni ef mér leyfist að fullyrða svo stórt... brosið fór varla af mér alla ferðina sem var svakalega vel heppnuð frá mínum bæjardyrum séð:)

Búin að ganga frá gistingu fyrir næsta ár... ekki seinna vænna því fólk er alveg byrjað að panta! Bendi á myndir á síðum vinkvenna minna- ég er bara ekki þessi tölvunörd...

Annars er allt fínt að frétta og röddin er svona að skríða til baka... Vona að ég verði búin að ná mér fyrir Police tónleikana sem ég fer á í byrjun sept;) verð nú að geta sungið með Sting...8)

Fæst orð bera minnsta ábyrgð:haha:

Blehh

Huldís8|


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 01:22:04 / huldis83

Bloggi blogg...

Jæja... vegna fjölda áskorana ákvað ég að blogga:lol: bloggandinn hefur bara alls ekki verið yfir mér...

 

Það er allt gott að frétta af mér og hefur verið nóg að gera síðustu vikur... Vinnan er alveg númer 1,2 og 3 og það er ekkert slakað á þar... Ég bara skil varla hvaðan allar þessar konur koma 8|

Annars hef ég verið dugleg við að fara útúr bænum af og til og slaka á... Það er mjög skrítið en mér finnst voðalega erfitt að vera í fríi hér í Rvk sérstaklega þegar ég er ein eitthvað að dúlla mér... Það er eins og maður þurfi alltaf að vera með félagsskap eða erindi til að geta bara eytt tímanum í góða veðrinu... þess vegna er fínt að fara bara uppí Borgó og liggja þar í letikasti;)

Við skruppum hringinn stelpurnar eins og glöggir lesendur bloggsins hafa eflaust séð... Fórum til Egilsstaða afmælishelgina mína og tjölduðum þar og gistum í 2 nætur... Skruppum meðal annars á ball í Valaskjálf og fórum að sjálfsögðu í partý til hennar Steinunnar frábæru fyrir það...:) það var snilldar helgi...

Svo skrapp ég til Keflavíkur í partý og djamm helgina þar á eftir til hennar Ragnhildar ofurskvísu og var það ansi skemmtilegt...

Síðustu helgi eyddi ég svo í Þórsmörk. Fór með Lilju, Munda og co og hitti Kristínu og Brodda að sjálfsögðu þar uppfrá og var það alveg rosalega fín helgi... Það er svo rólegt og flott að vera þarna:) Enda ætlum við megaskvísurnar að fara þangað aftur næstu helgi8) vona bara að það hangi þurrt...

Svo er nú á stefnuskránni að koma upp myndasíðu á þessa blessuðu bloggsíðu og það kemur örugglega áður en ég gifti mig;)

Og já ég er nú búin að vera í svefnátaki sem gengur svona vel... er bara tveimur og hálfum tíma of sein í rúmið núna:S en ég sef út í fyrramálið í staðinn...

Jei jei jei... Eyjar nálgast óðfluga og ég sit varla kyrr vegna þess... Lóa mín var að hringja og tilkynna mætingu þannig að þetta verður alveg magnað partý;) vona ég bara að fleiri bætist í hópinn..;) skora á ykkur!!

Úff orðin alltof sein í rúmið...
Huldís8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 12:01:35 / huldis83

Finally...

Bless bless...

 

Farin í frí til Egilsstaða... afmælis- og grillpartý á Tjaldgötu 23 annaðkvöld ef einhver á leið hjá:D 

 

Huldís:D  afmælisbarn...:haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9